Fotbolti.net
20.05.15 - 11:37
Hafliði Breiðfjörð

Omar Alieu Koroma í Þrótt (Staðfest)

Omar í leik með Forest Green gegn Swindon Town.

Omar í leik með Forest Green gegn Swindon Town.

Canon

Mynd: Getty Images

Omar Alieu Koroma 25 ára Gambíumaður er genginn til liðs við Þrótt. Omar er framherji sem kemur frá Dulwich Hamlet á Englandi.
Eftir að hafa æft með bæði Watford og Southampton árið 2007, samdi Omar við Portsmouth árið 2008 þegar að félagið var í Ensku úrvalsdeildinni, hann kom þá frá frá uppeldisfélagi sínu Banjul Hawks í Gambíu.

Í kjölfarið var hann lánaður til Norwich City og lék með þeim 5 leiki í Championship deildinni, sem er næst efsta deild á Englandi.

Frá 2012 hefur hann verið á mála hjá Forest Green Rovers og Dulwich Hamlet í Ensku neðri deildunum.

Omar á einnig að baki 2 landsleiki fyrir hönd Gambíu en hann lék gegn Senegal og Líberíu í undankeppni heimsmeistarakeppninnar 2010.

„Knattspyrnudeild Þróttar bindur miklar vonir við Omar og vonar að hann styrki og breikki hóp félagsins fyrir komandi baráttu um sæti í Pepsí-deildinni. Við Þróttarar bjóðum Omar Koroma hjartanlega velkominn í Þróttarfjölskylduna,\" segir í tilkynningu félagsins í dag.

Þó félagaskiptaglugginn hafi lokað síðastliðinn föstudag er enn opið fyrir að ganga frá félagaskiptum erlendis frá sem voru send inn fyrir þann tíma. Þetta er nýbreytni á félagaskiptareglum og gerði Þrótturum mögulegt að klára þessi félagaskipti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.