20.05.15 - 14:30
Eyþór Ernir Oddsson
Uwe Rosler ráðinn stjóri Leeds United (Staðfest)

Uwe Rosler þegar hann spilaði fyrir Southampton í upphafi aldarinnar

Mynd: Getty Images

Uwe Rosler, fyrrum leikmaður Manchester City hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Leeds United.
Þetta staðfestir Leeds á heimasíðu sinni í dag en Rosler stýrði síðast Wigan þar sem hann var rekinn eftir að Wigan lenti í fallsvæðinu í Championship deildinni í vetur.
Rösler er einna þekktastur sem framherji Manchester City á árunum 1994-1998 þar sem hann spilaði 176 leiki og skoraði í þeim 64 mörk en hann spilaði með mörgum félögum í heimalandi sínu, Þýskalandi, meðal annars með Kaiserslautern og Nurnberg.
Rösler stýrði Brentford þegar liðið komst upp í Championship deildina tímabilið 2013-14 en Brentford kom á óvart í vetur með því að komast í umspil um sæti í úrvalsdeild þar sem liðið tapaði fyrir Middlesbrough.