Fotbolti.net
20.06.15 - 11:30
Björgvin Stefán Pétursson

Chris Baird til Derby (Staðfest)

Baird ferskur

Baird ferskur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Derby County hafa fengið til sín Norður írska landsliðmanninn Chris Baird og gerðu við hann tveggja ára samning.
Þessi 33 ára gamli leikmaður fór frá West Brom í lok tímabilsins.

Baird sem að lék 24 leiki með West Brom á síðasta tímabili er fimmti leikmaðurinn sem Derby fá til liðs við sig síðan Paul Clement tók við.

„Hann er frábær atvinnumaður og mikilvæg viðbót við liðið og við hópinn.\" sagði Clement.

Baird byrjaði feril sinn hjá Southampton en hann hefur einnig spilað með Fulham, Reading og Burnley áður en hann fór til West Brom í júlí 2014.

Derby hafa einnig fengið til liðs við sig Darren Bent, Alex Pearce, Scott Carson og Adreas Weimann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.