Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 20. júlí 2021 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Elín Metta orðuð við Inter
Elín fagnar marki með Val.
Elín fagnar marki með Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elín Metta Jensen, sóknarmaður Vals, er orðuð við ítalska stórliðið Inter.

Soccerdonna, sem er með yfir 17 þúsund fylgjendur á Instagram, segir frá þessum tíðindum.

Elín Metta, sem er 26 ára gömul, hefur spilað allan sinn feril með Val, fyrir utan nokkur ár í háskólaboltanum í Bandaríkjunum með Florida State.

Hún hefur skorað 137 mörk í 192 keppnisleikjum með meistaraflokki Vals. Á þessari leiktíð hefur hún spilað tíu leiki í Pepsi Max-deildinni og skorað átta mörk. Hún er markahæsti leikmaður Pepsi Max-deildarinnar, ásamt Öglu Maríu Albertsdóttur.

Inter er risastórt félag á Ítalíu, en kvennaliðið félagsins var stofnað í október 2018. Liðið endaði í áttunda sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.


Athugasemdir
banner
banner