Fotbolti.net
20.08.19 - 21:20
Ívan Guðjón Baldursson

Salah svaraði Neville: Ég er ánægður hjá Liverpool

Salah svaraði Neville: Ég er ánægður hjá Liverpool
Canon

Mynd: Getty Images

Gary Neville lét umdeild ummæli falla á dögunum þar sem hann sagði að Mohamed Salah myndi yfirgefa Liverpool á næstu tólf mánuðum.
Hann talaði einnig um að Manchester United myndi vinna ensku úrvalsdeildina á undan Liverpool.

Salah fékk veður af ummælunum og gaf svar í samtali við CNN.

„Ég er ánægður hjá Liverpool. Þetta er frábært félag og frábær borg, ég elska stuðningsmennina og þeir elska mig. Ég er ánægður hérna," sagði egypski kóngurinn svokallaði.

Salah spilaði þrjá leiki fyrir Liverpool í síðustu viku og enduðu þeir allir með sigri. Hann skoraði og lagði upp í sigri gegn Norwich en komst ekki á blað í úrslitaleik evrópska Ofurbikarsins eða 1-2 sigri gegn Southampton.

Heimild: CNN

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.