Thiago Alcantara lék sinn fyrsta leik fyrir Liverpool í 2-0 sigri á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni núna áðan.
Thiago, sem var keyptur frá Bayern München í síðustu viku fyrir um 25 milljónir punda, kom inn á í hálfleik fyrir fyrirliðann Jordan Henderson.
Hinn 29 ára gamli Thiago sýndi flotta takta í leiknum, þó að hann hafi fengið á sig vítaspyrnu sem var varin.
Fram kemur hjá tölfræðisnillingunum Opta að Thiago hafi átt 75 heppnaðar sendingar í leiknum, fleiri en allir leikmenn Chelsea. Frá því að byrja var að taka saman tölfræði um sendingar hefur enginn leikmaður átt eins margar heppnaðar sendingar á eins stuttum tíma í ensku úrvalsdeildinni.
Ef það er eitthvað sem Thiago kann, þá felst það í því að senda fótbolta.
75 - Half-time substitute Thiago completed more passes (75) than any Chelsea player managed in the entire match. Since full passing data is available for the Premier League (2003-04), his 75 successful passes are the most by a player who played a maximum of 45 minutes. Control. pic.twitter.com/UvHfrw1ggN
— OptaJoe (@OptaJoe) September 20, 2020
Athugasemdir