20.10.26 - 13:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Daníel Hafsteins byrjar næsta tímabil í banni

Skoraði fimm mörk og lagði upp fimm í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Hafsteinsson, leikmaður Víkings, mun byrja næsta tímabil í banni eftir að hafa fengið sitt annað rauða spjald á tímabilinu gegn Breiðabliki á föstudag. Með því fer hann sjálfkrafa í tveggja leikja bann.
Hann verður í banni í lokaumferðinni gegn Fram og afplánar svo seinni leikinn á næsta tímabili. Fyrra rauða spjaldið fékk Daníel í þarsíðustu umferð og var því ansi spjaldaglaður undir lok tímabilsins.
Hann verður því í banni í meistarar meistaranna, Meistarakeppni KSÍ, á næsta tímabili en þar munu Íslandsmeistararnir í Víkingi taka á móti bikarmeisturunum í Breiðabliki áður en Besta deildin 2027 hefst.

TENGT EFNI
Úrvalslið ársins í Bestu deildinni 2026
Daníel átti mjög gott tímabil með Víkingi og er í liði ársins annað tímabilið í röð eftir að hafa verið á bekknum í liði ársins 2024.
Úr reglum KSÍ - greinar 13.2 og 13.3
Viðurlög aga- og úrskurðarnefndar í agamálum skal afplána í leikjum í Íslandsmóti og meistarakeppni KSÍ annars vegar og hins vegar í þeirri bikarkeppni sem til viðurlaga er stofnað nema annað sé tekið fram í úrskurði aga- og úrskurðarnefndar. Viðurlög við brotum í innanhússknattspyrnu - Futsal skal fara með skv. grein 13.10 og viðurlög varðandi keppni í 7 manna liðum skal fara með skv. grein 13.11.f
Ef leikmaður eða þjálfari á eftir að taka út agaviðurlög vegna brottreksturs þegar keppnistímabili lýkur, skal það gert í byrjun næsta keppnistímabils viðkomandi. Agaviðurlög vegna áminninga flytjast ekki á milli keppnistímabila. Flytjist leikmaður á milli aldursflokka um áramót, skal hann taka út viðurlög vegna brottreksturs í nýjum aldursflokki.