Fotbolti.net
20.10.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Skagamenn gleðjast í getraunum

Skagamenn gleðjast í getraunum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Félagakerfi ÍA sló í gegn og fékk 13 rétta á Enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag. Vinningurinn var um 900 þúsund krónur.
Fjölmargir Skagamenn eru þátttakendur í félagakerfinu og fá þeir allir glaðning í sinn hlut. Einn tippari til viðbótar var með 13 rétta en sá er búsettur í Borgarnesi, steinsnar frá Akranesi.

Þrír tipparar voru svo með 13 rétta á Sunnudagsseðlinum og fær hver þeirra um 450 þúsund krónur í sinn hlut. Einn þessara tippara er Skagamaður og stuðningsmaður ÍA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.