19.10.26 - 22:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Matti Villa og Viktor Bjarki í Garðabæinn?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan staðfesti á dögunum ráðningu á Rúnari Páli Sigmundssyni sem þjálfara liðsins. Hann gerði Stjörnuna að Íslandsmeistara 2014 og bikarmeistara 2018.
Guðmundur Benediktsson sagði frá því í Stúkunni í kvöld að Matthías Vilhjálmsson verði aðstoðarþjálfari Rúnars. Matthías hefur verið þjálfari í yngri flokkum Víkings eftir að hafa lagt skóna á hilluna fyrir ári síðan.
Þá mun Viktor Bjarki Arnarsson verða yfirmaður fótboltamála hjá Stjörnunni ef marka má heimildir Kristjáns Óla Sigurðssonar sem segir frá tíðindunum á X.
Viktor Bjarki kemur einnig úr Víkinni en hann er aðstoðarþjálfari Íslandsmeistaranna.

Nýr director of football hjá Srjörnunni.
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) October 19, 2026
Vikror Bjarki Arnarsson. Skjalfest
#HeimavinnaHöfðingjans

Viktor Bjarki Arnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð