Fotbolti.net
20.10.26 - 13:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Afturelding hafnaði háu tilboði í Bjart Bjarma

Afturelding hafnaði háu tilboði í Bjart Bjarma
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjartur Bjarm Barkarson átti mjög gott tímabil með Aftureldingu þegar liðið vann Lengjudeildina og fór alla leið í úrslitaleik Mjólkurbikarsins.

Bjartur Bjarmi, sem kom frá Víkingi Ólafsvík, var á sínu fjórða tímabili í Mosó og var í liði ársins hér á Fótbolta.net fyrir frammistöðu sína á tímabilinu.

Hann hefur verið orðaður við önnur félög síðustu misseri, bæði eftir tímabilið 2025 og aftur nú í haust.
Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti
TENGT EFNI

Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti

Valur vildi fá hann í sínar raðir og var í Innkastinu sagt frá því að Afturelding hefði hafnað háu tilboði í varnarsinnaða miðjumanninn.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hljóðaði það upp á yfir tíu milljónir króna. Hluti af samtalinu milli Aftureldingar og Vals var sá möguleiki að Andi Hoti yrði áfram hjá Aftureldingu, Afturelding vill halda honum innan sinna raða en hann var á láni frá Val á liðnu tímabili. Sú sviðsmynd var sett upp að Afturelding gæti haldið Andi en á endanum höfnuðu Mosfellingar tilboðum Vals.

Bjartur Bjarmi er fæddur árið 2002 og er samningsbundinn Aftureldingu út næsta tímabil.
Afturelding hafnaði háu tilboði í Bjart Bjarma
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Yrði dýrasta liðið til að falla

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.