Skrifstofa KSÍ hefur staðfest að Grindavík tefldi fram ölöglegu liði gegn HK í leik í Lengjubikarnum sem fram fór 15. febrúar síðastliðinn.
Grindavík vann leikinn upphaflega 2-1 en HK hefur verið dæmdur 3-0 sigur.
Grindavík vann leikinn upphaflega 2-1 en HK hefur verið dæmdur 3-0 sigur.
Sóknarmaðurinn Guðmundur Magnússon (á mynd) fór til Grindavíkur í vetur en hann var enn skráður í ÍBV þegar leikurinn fór fram.
Fyrr í keppninni tefldi HK fram ólöglegum leikmanni gegn FH og Hafnarfjarðarliðinu var þá dæmdur sigur eftir að HK hafði unnið leikinn.
Hér má sjá leikjadagskrána og stöðuna í riðlinum (af vef KSÍ).
Athugasemdir