Fotbolti.net
21.02.26 - 21:57
Ívan Guðjón Baldursson

England: Man City tveimur stigum frá Arsenal

England: Man City tveimur stigum frá Arsenal
Canon

Mynd: EPA

Man City 2 - 1 Newcastle
1-0 Nico O'Reilly ('14)
1-1 James Hill ('22)
2-1 Nico O'Reilly ('27)
Manchester City er komið aðeins tveimur stigum frá toppliði Arsenal í titilbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar. Lærlingar Pep Guardiola tóku á móti Newcastle United í þriðja innbyrðisslag liðanna á árinu eftir að þau áttust við í undanúrslitum deildabikarsins.

Það var rosalega hátt tempó í byrjun leiks og náðu heimamenn forystunni þegar miðjumaðurinn efnilegi Nico O'Reilly, sem hefur spilað mikið í vinstri bakverði á upphafi ferilsins með meistaraflokki, skoraði með góðu skoti við vítateigslínuna eftir skyndisókn beint í kjölfar markspyrnu frá Newcastle. O'Reilly byrjaði vinstra megin á miðjunni í kvöld, var mjög framsækinn og stóð sig feykilega vel.

Lewis Hall jafnaði metin fyrir gestina, skömmu eftir að Gianluigi Donnarumma hafði varið frá Anthony Gordon, eftir hornspyrnu á 22. mínútu. Boltinn barst til Hall sem náði góðu skoti við vítateigslínuna sem fór af varnarmanni og endaði í netinu.

Fimm mínútum síðar skoraði O'Reilly aftur, í þetta sinn með skalla eftir frábæran undirbúning frá Antoine Semenyo og Erling Haaland. Norðmaðurinn kröftugi gaf fullkomna fyrirgjöf með hægri löppinni.

Síðari hálfleikurinn var rólegri, þar sem Man City stjórnaði ferðinni og var hættulegra liðið en gestirnir áttu sínar rispur. Newcastle tókst þó ekki að ógna mikið fyrr en á lokasekúndum leiksins en Donnarumma gerði vel að verja svo lokatölur urðu 2-1.

Man City er með 56 stig eftir 27 umferðir, á meðan Newcastle er um miðja deild með 36 stig.

Staðan er þannig að Manchester City vinnur Englandsmeistaratitilinn ef liðið sigrar alla þá leiki sem eru eftir á tímabilinu, þar á meðal heimaleikinn gegn Arsenal.

Arsenal vinnur að sama skapi Englandsmeistaratitilinn ef liðið sigrar alla leiki sem eru eftir á deildartímabilinu.
England: Man City tveimur stigum frá Arsenal
Canon

Mynd: EPA

England: Man City tveimur stigum frá Arsenal
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.