Móðir Cristiano Ronaldo, Dolores, er útskrifuð af sjúkrahúsi eftir að hafa fengið heilablóðfall í byrjun þessa mánaðar.
Dolores, sem er 65 ára, hefur verið að glíma við veikindi gegnum árin. Hún sigraðist á krabbameini í brjósti 2007 og fékk svo krabbamein í hitt brjóstið, sem hún greindi frá á síðasta ári.
Ronaldo er einn besti fótboltamaður heims og leikur fyrir Juventus. Hann fór til Madeira og var hjá móður sinni. Hann er enn í Portúgal vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.
Dolores setti inn færslu á Instagram: „Ég er heppin að fá tækifæri til að lifa, að elska fjölskyldu mína og hafa hana nálægt mér. Ég vil þakka öllum fyrir stuðning þeirra og hlýju."
„Núna er ég heima umvafin fjölskyldu og góðri orku."
Athugasemdir