Fotbolti.net
21.06.15 - 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Paulo Sousa tekur við Fiorentina (Staðfest)

Paulo Sousa

Paulo Sousa

Canon

Mynd: Getty Images

Paulo Sousa, fyrrum stjóri Swansea og Basel mun taka við stjórn ítalska úrvalsdeildarliðsins Fiorentina.

Sousa þjálfaði Basel á síðasta tímabili, en hann komst að samkomulagi við þá um riftun á samningi sínum, eftir að Fiorentina kom inn í myndina.
\"ACF Fiorentina tilkynnir það með stolti að samkomulag hefur náðst við Paulo Sousa, um að taka við stjórn liðsins,\" segir í yfirlýsingu frá Fiorentina.

Fiorentina hefur verið að leita sér að þjálfara eftir að Vincenzo Montella var óvænt rekinn á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.