Fotbolti.net
21.06.26 - 02:33
Brynjar Ingi Erluson

Setti nýtt met og nálgast milljón fylgjendur

Þjálfarateymi og leikmenn Curacao hópuðust allir að Room eftir lokaflautið

Þjálfarateymi og leikmenn Curacao hópuðust allir að Room eftir lokaflautið

Canon

Mynd: EPA

Eloy Room, markvörður Curacao, setti nýtt met þegar hann tryggði þjóð sinni fyrsta stigið á heimsmeistaramóti með fimmtán vörslum í markalausa jafnteflinu gegn Ekvador í nótt. Fylgjendum hans á Instagram hefur fjölgað hratt eftir leikinn.
HM: Sögulegt hjá nýliðunum - Markvörðurinn með fimmtán vörslur
TENGT EFNI

HM: Sögulegt hjá nýliðunum - Markvörðurinn með fimmtán vörslur

Þessi 37 ára gamli markvörður átti eina ótrúlegustu frammistöðu mótsins til þessa.

Room varði fimmtán skot, en slíkar tölur hafa ekki sést á HM síðan Tim Howard varði sextán skot fyrir Bandaríkin gegn Belgíu á HM í Brasilíu árið 2014.

Room, sem átti stærstan þátt í að tryggja Curacao stigið, náði ekki að bæta met Howard en setti sitt eigið. Hann á nú flestar vörslur í 90 mínútna leik á HM síðan skráningar hófust árið 1966.

Howard á enn metið yfir flestar vörslur í einum leik, en Bandaríkin fóru í framlengingu gegn Belgíu í 16-liða úrslitum mótsins.

Markverðir hafa margir hverjir verið frábærir á þessu móti, en frammistaða Room er sú besta til þessa.

Þar má meðal annars nefna stórleik hins fertuga Vozinha með Grænhöfðaeyjum í markalausa jafnteflinu gegn Evrópumeisturum Spánar.

Vozinha fékk milljónir nýrra fylgjenda eftir þá frammistöðu og nú ætla notendur samfélagsmiðla að gera það sama fyrir Room, sem nálgast nú milljón fylgjendur á Instagram.

Room er kominn með 633 þúsund fylgjendur þegar þetta er skrifað en sú tala hækkar ört og mun halda áfram að gera næstu daga.

Markvörðurinn er fæddur og uppalinn í Hollandi. Hann lék lengi með Vitesse í hollensku úrvalsdeildinni en er í dag á mála hjá Miami FC í USL-deildinni í Bandaríkjunum.

Room skipti yfir í landslið Curacao árið 2015 og hefur meira og minna verið aðalmarkvörður liðsins síðan.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.