Brobbey tvöfaldaði forystuna - Verður hann sá þriðji til að skora þrennu?

Brian Brobbey er kominn með tvennu

Mynd: EPA

Brian Brobbey er kominn með tvennu

Mynd: EPA
Hollendingar eru sjóðandi heitir í upphafi leiks gegn Svíum í F-riðli heimsmeistaramótsins, en þeir eru komnir í 2-0 þegar tuttugu mínútur eru liðnar.

TENGT EFNI
Sjáðu markið: Tók Hollendinga tæpar fimm mínútur að skora
Brobbey kom Hollendingum yfir á 5. mínútu eftir laglega fyrirgjöf frá Cody Gakpo og var aftur á ferðinni tólf mínútum síðar.
Denzel Dumfries átti þá fyrirgjöf frá hægri inn á Brobbey, sem náði snertingu á boltann og boltinn lak neðst í vinstra hornið.
Aðeins tveir leikmenn hafa skorað þrennu á HM til þessa, þeir Lionel Messi og Jonathan David, en Brobbey er á góðri leið með að skrá sig í þann hóp.
Þetta hefur verið einstefna hjá Hollendingum og stefnir í langan dag hjá Svíum ef þetta heldur svona áfram. Sjáum þó til, það var að skella á vatnspása og hún breytir oft leikjum.
Sjáðu markið hér

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!