Fotbolti.net
20.06.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þrír orðaðir við starfið hjá Portúgal

Jorge Jesus

Jorge Jesus

Canon

Mynd: EPA

Roberto Martinez hættir sem landsliðsþjálfari Portúgal þegar samningurinn hans rennur út í sumar.

Breski blaðamaðurinn Ben Jacobs greinir frá því að portúgalska fótboltasambandið eru með þrjá menn á óskalistanum sem mögulega arftaka Martinez.
Það eru Jorge Jesus, Abel Ferreira og Sergio Conceicao. Jose Mourinho kom einnig til greina áður en hann tók við sem stjóri Real Madrid.

Jesus er 71 árs gamall en hann stýrði Cristiano Ronaldo hjá Al-Nassr. Hann hætti með liðið eftir að hafa unnið deildartililinn í Sádi-Arabíu á síðasta tímabili. Ferreira er 47 ára gamall stjóri Palmeiras í Brasilíu og Conceicao hætti hjá Al-Ittihad í síðasta mánuði, hann er pabbi Francisco Conceicao sem er í portúgalska hópnum á HM.

Jacobs greinir frá því að Martinez, sem stýrði Swansea, Wigan og Everton á sínum tíma, sé opinn fyrir því að snúa aftur í úrvalsdeildina en hann hafi einnig rætt við Al-Nassr.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.