Fotbolti.net
21.06.26 - 13:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Van Dijk gagnrýndur og Klopp svaraði

Van Dijk gagnrýndur og Klopp svaraði
Canon

Mynd: EPA

Hollendingurinn Rafael van der Vaart, fyrrum leikmaður Real Madrid og Tottenham, var alls ekki hrifinn af Virgil van Dijk í leik Hollands gegn Japan í fyrstu umferð riðlakeppninnar á HM.

„Ég verð að segja með sanni að ég varð svolítið hissa á Van Dijk. Þessi beygja... Þetta var svolítið eins og Boeing 747. Ég vona að hann muni hlaupa aðeins hraðar á meðan mótinu stendur,“ sagði Van der Vaart.
Jurgen Klopp svaraði gagnrýni Van der Vaart í þýska sjónvarpinu eftir 5-1 sigur á Svíþjóð í gær.

„Ég veit ekki hvort það sé þess virði að nefna Rafael van der Vaart yfir höfuð. Ég get tekið honum alvarlega aftur ef hann segir eitthvað jákvætt um leikmannm," sagði Klopp.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.