Freysi fékk já frá syninum út af leiknum gegn Man Utd

Mynd: Rosenborg

Mynd: EPA

Mynd: Rosenborg
Freyr Alexandersson var í liðinni viku ráðinn þjálfari Rosenborgar í Noregi. Hann var því ekki lengi án starfs eftir að hafa verið látinn fara frá Brann.
Rosenborg er í miklum vandræðum og situr í fallsæti í deildinni. Í þriðja leik Freys sem þjálfari Rosenborgar mun hann ekki stýra liðinu í deildinni heldur gegn enska stórliðinu Manchester United í æfingaleik sem var skipulagður áður en Freyr tók við. Fyrsti leikur Rosenborg undir stjórn Freys verður gegn Start, næst Kristiansund og svo er það United. Fimmti leikurinn er svo útileikur gegn Brann.
Freyr var til viðtals í Útvarpsþættinum Fótbolti.net í gær og var snert á komandi leik gegn United. Hann segir að sonur sinn og yngsta barnið, Daníel Freyr, hafi samþykkt að Freyr tæki við Rosenborg út af leiknum gegn United.

TENGT EFNI
Íslensk yfirtaka hjá stærsta félagi Noregs - „Lið í miklum vandræðum"
„Það er svolítið skrítin tilhugsun að fara í það verkefni, ekki beint ákjósanlegt, en auðvitað er spenna að fá Manchester United í bæinn og allt það, þannig ég ætla ekki að væla yfir því. Það er búið að skipuleggja þetta, þetta er á dagskránni og ég geri það besta úr stöðunni."
„Ég held þetta sé ekki ákjósanlegt að mörgu leyti, en þetta verður gaman og fékk son minn til að samþykkja það að ég gæti farið til Rosenborg. Það hjálpaði mér í þeirri ákvörðun," segir Freyr sem er stuðningsmaður Liverpool.