HM: Túnisar aftur teknir í bakaríið og eru á heimleið

Junya Ito.

Mynd: EPA

Junya Ito.

Mynd: EPA
Túnis 0 - 4 Japan
0-1 3' Daichi Kamada
0-2 30' Ayase Ueda
0-3 68' Junya Ito
0-4 82' Ayase Ueda
0-1 3' Daichi Kamada
0-2 30' Ayase Ueda
0-3 68' Junya Ito
0-4 82' Ayase Ueda
Eftir 5-1 tap gegn Svíþjóð í fyrstu umferð fékk Túnis annan skell í nótt þegar liðið tapaði 4-0 gegn Japan. Sabri Lamouchi var rekinn sem þjálfari Túnisa eftir fyrsta leik en ekki gekk betur í fyrsta leik Herve Renard.
Leikurinn í nótt var spilaður í Mexíkó og tók Japan forystuna eftir innan við þrjár mínútur, eftir góða skyndisókn. Daichi Kamada, leikmaður Crystal Palace, skoraði.
Ayase Ueda tvöfaldaði forystuna og í seinni hálfleik skoruðu Junya Ito og Ayase Ueda.
Japanska liðið spilaði stórskemmtilegan fótbolta og flæðið í þeirra leik var til fyrirmyndar. Það má fastlega gera ráð fyrir að Japan fari áfram en liðið vonast til að innsigla það á föstudag þegar það mætir Svíþjóð.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!