Fotbolti.net
21.06.26 - 10:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Tómas Guðmunds spáir í 11. umferð Bestu deildarinnar

Tómas Guðmundsson.

Tómas Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spámaður
Það er algjör veisla framundan í Bestu deildinni í dag þar sem fimm leikir eru á dagskrá í kvöld.

Birkir Már Sævarsson var með tvo rétta þegar hann spáði í síðustu umferð en Tómas Guðmundsson, fyrrum leikmaður Víkings, spáir í leikina að þessu sinni.
Breiðablik 2 - 2 KA (18:00 í dag)
Þetta er alltaf X leikur. Djuric er búin að finna hnífasettið og er alltaf að fara setja allavega 2 mörk fyrir KA menn.

Valur 1 - 1 Keflavík (18:00 í dag)
Adam Páls þakkar traustið og setur 1 og leggur upp 13 dauðafæri sem Valsmenn nýta ekki. Davíð Helgi skorar með skalla eftir horn og tekur Nani fagnið góða.

ÍBV 2 - 3 Stjarnan (18:00 í dag)
Garðbæingar rífa sig loksins upp og klára þennan leik 2-3. Biddi og Emil Atla með mörk Stjörnumanna en Bjarki Gunnars fyrir Eyjamenn.

FH 2 - 1 Þór (18:00 í dag)
Svona miðað við orkuna sem var í Krikanum á Frikka Dór í vikunni, þá halda vinir mínir úr Hafnafirði áfram sigurgöngunni með sterkum 2-1 sigri. Brynjar Ben og Garðar Leifs leyfa sér að dreyma um efri helminginn.

Fram 1 - 3 Víkingur R. (20:15 í dag)
Ég sé ekkert annað en 1-3 sigur Víkinga í þessum leik. Eitthvað sem segir mér að Gylfi setji eitt úr aukaspyrnu. Óskar og Aron Elís klára þetta svo í seinni hálfleik. Bjarni Páll Runólfsson, the privilege whiteboy, klórar í bakkann fyrir Framara og fagnar ekki á meðan Vikes Ultraz syngja og tralla; Baddi komdu heim.

KR 3 - 2 ÍA (19:15 á morgun)
KR-ingar komast aftur á beinu brautina eftir námskeiðið í Víkinni. Kalli er víst búin að skila Amin Cosic heilu og höldnu uppí í Vesturbæinn sem ég best veit, þannig þeir ættu að klára þetta 3-2 ef allt er eðlilegt.

Fyrri spámenn:
Elmar Kári (4 réttir)
Ragnar Bragi (4 réttir)
Gísli Gotti (4 réttir)
Júlíus Mar (3 réttir)
Stefán Þór (3 réttir)
Ágúst Brynjars (3 réttir)
Siggi Raggi (3 réttir)
Birkir Már (2 réttir)
Kári Sigfússon (2 réttir)
Siggi Hall (1 réttur)
Fáum við mörk frá Djuric?

Fáum við mörk frá Djuric?

Canon

Mynd: KA

Víkingar hafa verið á svakalegu skriði undanfarið.

Víkingar hafa verið á svakalegu skriði undanfarið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.