banner
   sun 21. júlí 2019 18:24
Egill Sigfússon
Byrjunarlið KR og Stjörnunnar: Fjórar breytingar hja Stjörnunni
Skúli kemur inn í liðið fyrir Finn Tómas
Skúli kemur inn í liðið fyrir Finn Tómas
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Topplið Pepsí Max-deildarinnar KR fær Stjörnuna í heimsókn á Meistaravelli klukkan 19:15 í 13. umferð deildarinnar í kvöld.
KR er með 7 stiga forskot á toppi deildarinnar fyrir leikinn og hefur unnið 8 leiki í röð í deildinni.
Stjarnan hefur unnið tvo og gert eitt jafntefli í síðustu 3 leikjum sínum og eru komnir í 4.sætið með 19 stig eftir erfiða byrjun og eru 10 stigum á eftir KR.

Beinar textalýsingar:
19:15 KR - Stjarnan
19:15 Víkingur R. - Valur

KR gerir eina breytingu á byrjunarliði sínu eftir sigurinn á ÍBV í síðustu umferð, Finnur Tómas er búinn að vera glíma við meiðsli og er á varamannabekknum. Skúli Jón Friðgeirsson byrjar í hans stað. Kristján Flóki er ekki í liðinu en hann kemur ekki inn í liðið fyrr en í Ágúst.

Stjarnan gerir fjórar breytingar á liði sínu frá jafnteflinu við Grindavík í síðustu umferð. Jóhann Laxdal, Þorri Geir, Martin Rauschenberg og Baldur Sigurðsson koma inn í byrjunarliðið fyrir Brynjar Gauta, Jósef Kristinn, Alex Þór og Guðmund Stein.


Byrjunarlið KR
1. Beitir Ólafsson (m)
4. Arnþór Ingi Kristinsson
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
7. Skúli Jón Friðgeirsson
10. Pálmi Rafn Pálmason
11. Kennie Chopart
16. Pablo Punyed
19. Kristinn Jónsson
20. Tobias Thomsen
22. Óskar Örn Hauksson (f)
23. Atli Sigurjónsson

Byrjunarlið Stjörnunnar
1. Haraldur Björnsson (m)
4. Jóhann Laxdal
6. Þorri Geir Rúnarsson
8. Baldur Sigurðsson (f)
9. Daníel Laxdal
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
12. Heiðar Ægisson
18. Sölvi Snær Guðbjargarson
19. Martin Rauschenberg
20. Eyjólfur Héðinsson
Athugasemdir
banner
banner