Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. júlí 2019 20:51
Arnar Helgi Magnússon
Shelvey við stuðningsmenn: Gefið honum séns
Mynd: Getty Images
Ráðning Steve Bruce hefur farið illa í einhverja stuðningsmenn Newcastle, svo illa að hópur stuðningsmanna sendi frá sér harðorða yfirlýsingu.

Jonjo Shelvey, leikmaður Newcastle, segir að það sé engin ástæða til þess að örvænta.

„Stuðningsmenn félagsins verða að gefa honum tækifæri. Það er engin ástæða til þess að örvænta yfir neinu. Við eigum eftir að gera góða hluti," segir Shelvey.

„Leikmannahópurinn er ánægður með hann. Hann vill að allir leggi hart að sér og enn sem komið er hafa leikmennirnir gert það."

Newcastle hafði betur gegn West Ham í æfingaleik í gær.

„Fólk heldur því stöðugt fram að við séum ekki nægilega góðir og við ættum að fara niður um deild. Nú er það í okkar höndum að binda enda á þetta neikvæða tal."
Athugasemdir
banner
banner
banner