Fotbolti.net
21.07.26 - 21:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Eins og að lenda í kyrkislöngu - „Fannst við þora að vera til aftur"

Auglýsing
Eins og að lenda í kyrkislöngu - „Fannst við þora að vera til aftur"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur vann Hapoel Be'er Sheva frá Ísrael í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar á Víkingsvelli í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Aron Snæ Friðriksson, markvörð Víkings, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 1 Hapoel Be'er Sheva
„Þeir pressa okkur svakalega og framherjinn er í rauninni að dekka mig sem er mjög steikt tilfinning, við lendum ekki oft í því. Þetta var skítamark að fá á sig, þetta er kostnaðurinn við spila út stundum, við klikkuðum einu sinni og þeir refsa," sagði Aron.

„Þeir eru í maður á mann að skilja kantarana eftir, ég hef aldrei séð svona fótbolta. Þetta er smá eins og að lenda í kyrkislöngu, þeir ná að festa þig inni og það er erfitt að komast út en við vorum að finna leiðir, ég er ánægður hvernig við brugðumst við."

Víkingur komst yfir en Hapoel jafnaði metin. Markið var skoðað í VAR en fékk að standa. Gestirnir skoruðu aftur en það mark fékk ekki að standa.

„Ég var allan tímann að vona að hann myndi flauta þessi mörk af. Því lengur sem þetta var því betra í mínum augum. Í fyrra skiptið labbaði hann í átt að miðjunni og í seinna skiptið að mér, ég hafði smá trú á þessu í seinna skiptið. Við erum nátturulega ekki með þetta á Íslandi og við þurfum kannski að koma með þetta því þetta í raun vinnur leikinn," sagði Aron.

Víkingar komust aftur í gang eftir að mark gestanna var dæmt af og skoruðu sigurmarkið.

„Mér fannst við þora vera til aftur. Við gerðum vel og uppskárum mark. Mér finnst við fá miklu fleiri færi en þeir. Við gerðum vel að mestu leyti en hefðum átt að skora meira," sagði Aron.
Eins og að lenda í kyrkislöngu - „Fannst við þora að vera til aftur"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.