Sölvi sáttur: Vil fá VAR í íslensku deildina
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur vann Hapoel Be-er Sheva frá Ísrael í fyrri leik liðanna í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar á Víkingsvelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 1 Hapoel Be'er Sheva
„Ég er sáttur með frammistöðu liðsins í dag. Við vorum djarfir og fórum hátt upp í pressuna. Varnarlínan gerði frábærlega að vera í réttri stöðu og verja svæðið fyrir aftan sig. Orkan og liðsheildin skein í gegn," sagði Sölvi.
„Ég er ánægður hvernig þeir bregðast við smá pressukafla frá þeim. Við náum ekki okkar leik og þeir ýta okkur niður. Við höldum áfram að reyna koma okkur til baka og missum ekki trúna og verðum litlir í okkur. Eins og þið sáuð í kvöld vorum við líklegri aðilinn til að setja þriðja markið en þeir að jafna. Ég hefði viljað fá stærri sigur miðað við færin en markmaðurinn þeirra gerði frábærlega og heldur þeim inn í leiknum."
Sölvi var með svipaða tilfinningu eftir 1-0 sigur liðsins á Györ í fyrri leiknum í síðustu umferð.
„Allt öðruvísi leikmynd, við sköpuðum okkur urmul af færum eins og síðast. Þeir vildu pressa okkur hátt, þetta var meiri leikur um að ná stjórn á honum. Við þurfum að vera þolinmóðir án boltans. Að sama skapi spiluðum vel í gegnum pressuna. Þegar það gerist opnast mikið af svæðum fyrir okkur, við vorum klaufar að nýta það ekki betur."
VAR dæmdi mark af Ísraelunum í stöðunni 1-1. Sölvi Geir vill sjá VAR í íslensku deildinni.
„Hafa þetta eins sanngjarnt og mögulegt er. Það var sanngjarnt að þeir fengu ekki annað markið. Ég er hlynnur VAR svo framarlega sem þetta tekur ekki of langan tíma. Mér fannst þetta taka ekki það langan tíma," sagði Sölvi.
„Við þurfum að koma og spila svipaðan fótbolta og í dag. Við megum ekki hræðast það að vera fara á útivelli. Við sáum það að ef við ætlum að liggja til baka mun þetta reynast mjög erfitt eins og fyrri hálfleikurinn spilaðist í Györ. Við þurfum að vera áfram hugrakkir að bjóða okkur og vilja fá boltann. Danni missir boltann í markinu en hann heldur áfram að bjóða sig. Við viljum stjórna leiknum og komast hærra á völlinn. Við þurfum að halda því áfram og treysta og trúa á að það komi okkur áfram," sagði Sölvi.