
Byrjunarlið Víkings gegn Hapoel: Sölvi gerir markvarðarbreytingu

Ögmundur hefur byrjað síðustu leiki í fjarveru Arons Snæs.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron meiddist í byrjun mánaðar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ögmundur hefur byrjað síðustu leiki í fjarveru Arons Snæs.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur tekur á móti ísraelsku meisturunum Hapoel Be'er Sheva á Víkingsvelli í 2. umferð í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Seinni leikurinn fer síðan fram á miðvikudaginn í næstu viku í Ungverjalandi, þar sem UEFA leyfir ekki ísraelskum liðum að spila í Ísrael. Byrjunarliðin fyrir leik kvöldsins eru komin og má sjá lið Víkings hér að neðan.
Liðið er gjörbreytt frá síðasta leik liðsins í Bestu deildinni en þar gerði Sölvi margar breytingar og hvíldi nokkra lykilmenn. Þrjár breytingar eru á liðinu frá síðari leiknum gegn Györ sem fór fram í Ungverjalandi fyrir viku síðan. Í þeim leik byrjuðu Tarik Ibrahimagic og Sveinn Gísli Þorkelsson en þeir eru báðir á bekknum í dag. Inn í stað þeirra koma þeir Gunnar Vatnhamar og Aron Elís Þrándarson. Gunnar glímdi við minniháttar meiðsli en hann meiddist í upphitun fyrir fyrri leik liðsins við Györ.
Það sem vekur mesta athygli er það að Ögmundur Kristinsson, sem hefur byrjað síðustu leiki, er á bekknum í kvöld. Aron Snær meiddist í byrjun mánaðar í leik gegn KA og hefur verið utan hóps síðan þá. Ögmundur var nýgenginn til liðs við Víkings þegar þetta átti sér stað en ljóst er að Sölvi ætlar að treysta Aroni fyrir leik kvöldsins.
Byrjunarlið Víkingur R.
Aron Snær Friðriksson, Gunnar Vatnhamar, Helgi Guðjónsson, Daníel Hafsteinsson, Óskar Borgþórsson, Aron Elís Þrándarson, Karl Friðleifur Gunnarsson, Nikolaj Hansen, Valdimar Þór Ingimundarson, Oliver Ekroth (f), Gylfi Þór Sigurðsson
Byrjunarlið Hapoel Be'er Sheva
Ofir Marciano, Guy Mizrahi, Miguel Vitor (f), Amir Ganah, Ofir Davidzada, Kings Kangwa, Lucas Ventura, Yehoshuha, Djibril Diop, Mohammad Abu Rumi, Igor Zlatanovic

Aron meiddist í byrjun mánaðar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


