Fotbolti.net
21.07.26 - 22:56
Andri Stefánsson

Jeffs: Mér líður bara mjög vel

Auglýsing
Jeffs var sáttur eftir stórsigur

Jeffs var sáttur eftir stórsigur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Valur og Breiðablik áttust við í Bestu deild kvenna í kvöld. Breiðablik unnu sannfærandi 7-1 sigur. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Ian Jeffs sem var kampakátur eftir leik.
„Mér líður bara mjög vel. Þetta var frábær leikur hjá okkur. Við sköpuðum fullt af færum fyrstu 45 mínúturnar og þetta var virkilega góður hálfleikur af okkar hálfu. Við duttum aðeins niður um gír í seinni hálfleik en þetta var mjög góður leikur hjá okkur. Ég er mjög sáttur og ánægður með leikinn,“ sagði hann þegar hann var spurður út í stórsigurinn.

Liðið hefur skorað mikið í síðustu tveimur leikjum og var hann spurður hver galdurinn væri.

„Mér finnst við vera að nýta færin okkar aðeins betur núna. Við sköpuðum líka fullt af færum á móti Fram en nýttum þau ekki þann dag. Við höfum gert það núna á móti Víkingi og aftur á móti Val í kvöld. Ég er ánægður með þetta. Þetta var það sem þurfti aðeins að bæta og við höfum gert það í síðustu tveimur leikjum.“

Hann var einnig spurður út í fyrsta leik Þórdísar Elvu Ágústsdóttur með liðinu.

„Hún var mjög góð. Hún spilaði flottan leik í dag, tengdi vel í uppspilið okkar og var mjög hreyfanleg án bolta. Hún átti virkilega góðan leik.“

Að lokum var hann spurður hvernig næsti leikur gegn Þór/KA legðist í hann.

„Þetta verður erfiður leikur. Það er alltaf erfitt að mæta Þór/KA. Ég átti aldrei von á því að við yrðum sex mörkum yfir í hálfleik á móti Val í dag því það hefur verið erfitt að vinna Val með stórum mun. Þær hafa verið inni í öllum leikjunum sem þær hafa spilað og oft tapað með einu marki. Það kom mér því svolítið á óvart, ef ég á að segja alveg eins og er, að við skyldum fara með sex marka forystu inn í hálfleik. Það sýndi hvað við vorum virkilega góðar í dag. Næst tekur við leikur gegn Þór/KA. Þær unnu ÍBV í síðustu umferð og við þurfum auðvitað að undirbúa okkur vel. Þetta verður erfiður leikur.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.