Fotbolti.net
21.09.19 - 18:41
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn: Atletico tókst ekki að endurheimta toppsætið

Spánn: Atletico tókst ekki að endurheimta toppsætið
Canon

Mynd: Getty Images

Atletico Madrid gerði markalaust jafntefli við Celta Vigo í spænska boltanum í dag.
Atletico átti 20 marktilraunir í leiknum en fór aðeins eitt skot á rammann.

Atletico byrjaði tímabilið á þremur sigrum í röð en tapaði svo fyrir Real Sociedad í síðustu umferð. Liðið er því búið að missa toppsætið til Sevilla, sem á leik til góða gegn Real Madrid á morgun.

Levante og Eibar gerðu þá einnig markalaust jafntefli. Þeirra viðureign var þó gríðarlega fjörug þar sem liðin skiptust á að sækja, en inn vildi boltinn ekki.

Villarreal hafði þá betur gegn Real Valladolid. Santi Cazorla skoraði úr vítaspyrnu í 2-0 sigri.

Sigurinn var verðskuldaður og er Villarreal með átta stig eftir fimm umferðir.

Atletico Madrid 0 - 0 Celta Vigo

Levante 0 - 0 Eibar

Villarreal 2 - 0 Real Valladolid

1-0 Santi Cazorla ('77, víti)
2-0 P. J. Ontiveros ('89)
Spánn: Atletico tókst ekki að endurheimta toppsætið
Canon

Mynd: Getty Images

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona8+2724
2Atletico Madrid8+1019
3Betis8+519
4Real Madrid8+1118
5Sevilla8+114
6Real Sociedad8-313
7Alaves8+411
8Deportivo8+110
9Celta8+28
10Athletic6+18
11Villarreal808
12Espanyol808
13Vallecano7-58
14Getafe8-68
15Racing Santander8-108
16Osasuna8-108
17Levante7-46
18Elche8-66
19Valencia8-95
20Malaga8-94
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.