21.10.26 - 21:18
Brynjar Ingi Erluson
Carrick svarar Bruno: Ef þú ert ekki tilbúinn að hlaupa ertu ekki að fara að vinna fótboltaleiki

Michael Carrick og Bruno Fernandes

Mynd: EPA

Michael Carrick og Bruno Fernandes

Mynd: EPA

Michael Carrick, stjóri Manchester United, hefur svarað Bruno Fernandes, fyrirliða liðsins, eftir að hann gagnrýndi leikkerfið sem Carrick notaði í 4-1 tapinu gegn Como.

TENGT EFNI
Fernandes gagnrýndi þjálfarateymið eftir afhroðið
Fernandes gagnrýndi leikskipulag Carrick og þjálfarateymisins eftir leikinn og taldi að liðið hefði ekki pressað á réttan hátt.
Hann sagði Como hafa sýnt mikið hugrekki í sínum leik, en það sama hefði vantað hjá United.
Carrick hefur nú svarað gagnrýninni og er ekki alveg sammála Portúgalanum. Hann bendir á að liðið hafi reynt að pressa maður á mann í síðari hálfleiknum, en sú aðferð krefjist þess að leikmenn séu tilbúnir að leggja á sig vinnuna.
„Við reyndum í raun að pressa maður á mann í síðari hálfleiknum og fengum á okkur mark eftir það. Málið er að það skiptir ekki öllu máli hvaða leikkerfi eða taktík þú notar. Ef þú ert ekki tilbúinn að hlaupa, bæði fram á við og til baka, þá ertu ekki að fara að vinna fótboltaleiki,“ sagði Carrick.