21.10.26 - 21:55
Brynjar Ingi Erluson
Meiðsli Saka áhyggjuefni fyrir Arsenal - „Það eru aldrei góðar fréttir“

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var ánægður með viðbrögð sinna manna í 2-2 jafnteflinu gegn Bayern München í Meistaradeildinni í kvöld.

TENGT EFNI
Meistaradeildin: Rice kom Arsenal til bjargar - Aston Villa, Real Madrid og Betis með fullt hús
Arteta var þegar á heildina er litið ánægður með frammistöðu sinna manna, sérstaklega í ljósi þess að liðið þurfti að aðlagast breyttum aðstæðum eftir að Bukayo Saka fór meiddur af velli snemma leiks.
Hann var einnig ánægður með karakterinn sem Arsenal sýndi eftir að Bayern komst í 2-1 og hvernig leikmennirnir náðu að berjast til baka.
„Þessi leikur var á einhverju hæsta gæðastigi sem við höfum spilað á. Hér voru tvö lið sem vildu pressa hvort annað, sækja og halda boltanum innan liðsins. Þetta var virkilega áhugaverður leikur.“
„Við byrjuðum mjög vel og höfðum yfirhöndina, en síðan þurftum við að aðlagast því að vera án Saka. Síðari hálfleikurinn var nokkuð jafn og þeir komust yfir, en við þurftum að bregðast við því og gerðum það. Við jöfnuðum og fengum meira að segja tækifæri til að vinna leikinn. Þetta sýnir á hvaða stigi við erum.“
Arteta viðurkenndi þó að meiðsli Saka væru áhyggjuefni og að óvissa ríkti um hversu alvarleg þau væru.
„Þeir (læknateymið) hafa einhverjar áhyggjur. Það eru aldrei góðar fréttir þegar leikmaður þarf að fara af velli vegna skyndilegs, stingandi sársauka, en við verðum að bíða og sjá,“ sagði Arteta.