Fotbolti.net
21.10.26 - 21:19
Brynjar Ingi Erluson

Rooney fór yfir strikið í klefanum - „Ég rústaði honum!“

Wayne Rooney

Wayne Rooney

Canon

Mynd: EPA

Wayne Rooney, fyrrum leikmaður Manchester United og enska landsliðsins, segist hafa eyðilagt síma Ravel Morrison, fyrrum liðsfélaga síns, þegar sá síðarnefndi var að stíga sín fyrstu skref með aðalliði United.
Rooney og Morrison æfðu saman hjá United, en Morrison var á sínum tíma talinn einn efnilegasti leikmaður félagsins. Sir Alex Ferguson, fyrrum stjóri United, hefur meira að segja sagt að Morrison sé hæfileikaríkasti fótboltamaður sem hann hafi séð.

Rooney rifjaði upp atvik frá þeim tíma þegar Morrison var nýkominn upp í aðalliðið. Hann hafði sett símann sinn í hleðslu í búningsklefanum áður en hann fór á æfingu, en þegar hann sneri aftur hafði einhver tekið símann úr sambandi og sett annan í hleðslu. Sá sími reyndist vera í eigu Morrison og var Rooney ekki skemmt.

„Ég man þegar Ravel Morrison var að koma upp í aðalliðið. Ég átti svona BlackBerry-síma með netfanginu mínu framan á. Ég setti hann í hleðslu í litlu horni í búningsklefanum og fór á æfingu. Þegar ég kom til baka hafði einhver tekið símann minn úr sambandi og sett annan í hleðslu.“

„Ég hélt fyrst að einhver af strákunum hefði gert þetta, en svo sá ég að þetta var Ravel. Ég kallaði á hann og rústaði símanum hans,“
sagði Rooney.

Þrátt fyrir þetta atvik hefur Rooney ekkert nema gott um Morrison að segja og reyndi síðar að hjálpa honum að koma ferlinum á réttan kjöl. Þegar Rooney tók við þjálfun fékk hann Morrison til liðs við sig bæði hjá Derby County og DC United í von um að hjálpa honum að nýta þá miklu hæfileika sem hann hafði sýnt á yngri árum.

Morrison sýndi á köflum hversu hæfileikaríkur hann var, en náði aldrei að festa sig í sessi eins og vonir höfðu staðið til.

„Ég tók Ravel með mér til Derby og DC United. Hann er ótrúlega viðkunnanlegur náungi og hafði alveg einstaka hæfileika. Það er bara svo mikil synd að hann hafi aldrei náð að nýta þá til fulls,“ sagði Rooney í þættinum Stick To United.

Ravel Morrison

Ravel Morrison

Canon

Mynd: Derby County

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.