21.10.26 - 21:14
Brynjar Ingi Erluson
Íhuga að reyna aftur við Richarlison

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brasilíska félagið Vasco da Gama íhugar nú alvarlega að endurvekja áhuga sinn á Richarlison, leikmanni Tottenham á Englandi.
Vasco reyndi að fá Richarlison til liðs við sig í sumar, en tókst ekki að ná samkomulagi um félagaskipti.
Richarlison vildi sjálfur komast frá Tottenham, en ekkert varð úr því og var hann á endanum ekki skráður í úrvalsdeildarhóp félagsins. Síðan þá hefur hann æft og spilað með U21 árs liðinu og þykir líklegt að hann yfirgefi félagið á næsta ári.
Samkvæmt brasilíska miðlinum Torcedores ætlar Vasco að gera aðra tilraun til að fá Richarlison og gæti hann jafnvel yfirgefið Tottenham strax í janúarglugganum.
Samningur hans rennur út næsta sumar, en Tottenham hefur möguleika á að framlengja hann um eitt ár til viðbótar. Félagið gæti því nýtt sér þann möguleika til að tryggja að það fái greiðslu fyrir leikmanninn.