Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 22. janúar 2021 15:04
Elvar Geir Magnússon
Calvert-Lewin klár í slaginn
Dominic Calvert-Lewin á æfingu í gær.
Dominic Calvert-Lewin á æfingu í gær.
Mynd: Getty Images
Carlo Ancelotti, stjóri Everton, segir að Dominic Calvert-Lewin sé klár í slaginn og geti spilað í bikarleik gegn Sheffield Wednesday á sunnudaginn.

Calvert-Lewin var ekki með í sigrinum gegn Úlfunum í síðasta deildarleik Everton.

Það hefur hægst á markaskorun þessa 23 ára enska sóknarmanns en síðasta deildarmark hans kom gegn Burnley í byrjun desember.

Everton verður án Lucas Digne, Alex Iwobi, Allan, Jean-Philippe Gbamin, Fabian Delph og Niels Nkounkou á sunnudaginn.

Ancelotti segir að Digne og Iwobi ættu að snúa aftur í úrvalsdeildarleiknum gegn Leicester um miðja næstu viku.

Everton er í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner