Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fös 22. janúar 2021 10:30
Magnús Már Einarsson
Jordon Ibe glímir við þunglyndi
Jordon Ibe
Jordon Ibe
Mynd: Getty Images
Jordon Ibe, kantmaður Derby, hefur greint frá því að hann sé að glíma við þunglyndi. Ibe, sem er fyrrum leikmaður Liverpool, hefur einungis leikið einn leik með Derby síðan hann kom frá Bournemouth síðastliðið sumar og hann hefur nú greint frá ástæðunni.

„Ég vil biðja stuðningsmenn mína út um allan heim afsökunar. Ég er á slæmum stað því ég þjáist af þunglyndi," sagði Ibe á Instagram.

„Þetta er ekki leikur fyrir fjölmiðla eða til að hafa nafn mitt í umræðunni, hlutirnir eru bara í alvöru erfiðir hjá mér. Ég kann að meta ástina og skilaboðin sem ég hef fengið frá öllum."

„Þetta eru erfiðir tímar út af heimsfaraldrinum. Ég er með fullan stuðning frá fjölskyldu minni og Derby County."

„Ég mun takast á við þessa stöðu og ég er 100% ákveðinn í því. Ekki bara fyrir fjöskyldu mína, nánustu vini og dóttur mína heldur líka fyrir mig."

Athugasemdir
banner
banner
banner