Portúgalski sóknarmaðurinn Cristiano Ronaldo spilaði sinn fyrsta deildarleik í Sádi-Arabíu í kvöld er lið hans, Al-Nassr, vann 1-0 sigur á Al-Ettifaq í Riyadh.
Ronaldo skoraði á dögunum tvö mörk fyrir sameiginlegt lið Al-Nassr og Al-Hilal í 5-4 tapi gegn Paris Saint-Germain í vináttuleik en náði sér ekki á strik í kvöld.
Hann var í byrjunarliði Al-Nassr og spilaði allan leikinn en hann var með slökustu mönnum liðsins og átti aðeins eitt skot á markið.
Ronaldo sýndi þó skemmtileg tilþrif inn á milli í leiknum eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan, en samt sem áður ekki besta byrjunin í Sádi-Arabíu.
Cristiano Ronaldo still dropping players at 38.pic.twitter.com/D5CXrCIJnm
— Preeti (@MadridPreeti) January 22, 2023
Athugasemdir