Englandsmeistarar Liverpool unnu hádramatískan 1-0 sigur á Nottingham Forest í 27. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á City Ground-leikvanginum í dag. Sunderland tapaði annan heimaleikinn í röð er liðið lá fyrir Fulham, 3-1 og þá fengu áhorfendur að sjá rautt spjald, vítaspyrnuvörslu og seint sigurmark er Crystal Palace vann botnlið Wolves, 1-0.
Liverpool átti arfaslaka frammistöðu gegn Forest framan af. Arne Slot var neyddur til að gera ein breytingu á liðinu rétt fyrir byrjun leiksins er Florian Wirtz meiddist í upphitun og inn kom Curtis Jones.
Forest var með öll tök á leiknum. Callum Hudson-Odoi kom sér í dauðafæri í byrjun leiks er hann komst framhjá varnarmanni og var kominn einn gegn Alisson, en brasilíski markvörðurinn var vandanum vaxinn í markinu.
Heimamenn fengu að fleygja fyrirgjöfum inn á teiginn trekk í trekk og áttu gestirnir engin svör við sóknarleik þeirra.
Þeir gáttu prísað sig sæla að fara inn í hálfleikinn án þess að fá á sig mark.
Nikola Milenkovic var nálægt því að koma Forest yfir snemma í síðari hálfleik eftir fyrirgjöf frá Elliot Anderson en boltinn rétt framhjá markinu.
Liverpool fékk líklega sitt besta færi er Mohamed Salah skallaði fyrirgjöf inn á teiginn á Jones en Forest náði að bjarga á ögurstundu.
Leikurinn róaðist aðeins þegar leið á seinni hálfleikinn en fjórum mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma fengu Forest-menn tvö hættuleg færi.
Alisson var í vandræðum með fyrirgjöf Neco Williams. Morgan Gibbs-White var fyrstur að átta sig, en Liverpool-menn komu til bjargar og boltinn til Ibrahim Sangare sem setti hann framhjá.
Liverpool fékk dauðafæri á lokamínútunum og tókst að koma boltanum í netið. HInn 17 ára gamli Rio Ngumoha tók skemmtilega rispu hægra megin, lyfti boltanum inn á teiginn á Hugo Ekitike sem átti fastan skalla en markvörðurinn varði út á Ola Aina. Sá ætlaði að hreinsa en vildi ekki betur en svo að hann þrumaði boltanum í Alexis Mac Allister og þaðan skaust boltinn í netið.
VAR tók hins vegar markið af þar sem boltinn virðist fara í olnbogann á Mac Allister. Argentínumaðurinn var með hendurnar í náttúrulegri stöðu og eflaust margir sem munu deila um það hvort boltinn hafi farið í bakið á honum eða olnbogann, en markið tekið af og áfram hélt leikurinn.
Dramatíkin hélt áfram á lokasekúndum leiksins. Innkast var tekið stutt á Dominik Szoboszlai sem kom með fyrirgjöfina á fjær á Virgil van Dijk sem stangaði boltann í átt að marki. Forest-menn rétt náðu að hreinsa frá, en ekki lengra en á Mac Allister sem skoraði sigurmarkið.
Annað afar umdeilt mark enda leit Van Dijk út fyrir að vera rangstæður í aðdragandanum. VAR sagði markið gott og gilt, og má með sanni segja að Liverpool hafi stolið sigrinum í dag.
Ekki var það fallegt hjá Liverpool en mikilvægt. Liverpool er í 6. sæti með 45 stig á meðan Forest er í 17. sæti með 27 stig.
Crystal Palace marði 1-0 sigur á botnliði Wolves á Selhurst Park.
Úlfarnir fengu vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks eftir klaufalegt brot Adam Wharton á Mateus Mane. Toluwalase Arokodare fór á punktinn en Dean Henderson sá við honum.
Vont varð verra fyrir gestina í þeim síðari en þá fékk Ladislav Krejci tvö gul spjöld á þremur mínútum og það seinna fyrir að sparka boltanum í burtu. Heimskulegt hjá Tékkanum.
Á lokamínútum leiksins skoraði Evann Guessand sigurmarkið tæpum tuttugu mínútum eftir að hafa komið inn af bekknum. Ótrúlega mikilvægt hjá Palace sem hafði aðeins unnið einn af síðustu fimmtán leikjum sínum í öllum keppnum og sérstaklega gott fyrir Oliver Glasner sem hefur setið í heitu sæti.
Palace er í 13. sæti með 35 stig en Úlfarnir áfram á botninum með 10 stig.
Nýliðar Sunderland töpuðu öðrum heimaleiknum í röð er liðið lá fyrir Fulham, 3-1.
Fyrsta heimatapið kom gegn Liverpool í síðustu umferð og fylgdi annað strax í kjölfarið.
Raul Jimenez skoraði tvö mörk fyrir Fulham. Fyrra markið gerði hann á 54. mínútu með hnitmiðuðum skalla eftir hornspyrnu og það seinna um það bil sjö mínútum síðar með marki úr vítaspyrnu.
Það var aldrei spurning hjá Jimenez sem hefur skorað úr öllum þrettán vítaspyrnum sínum í ensku úrvalsdeildinni.
Sunderland fékk vítaspyrnu stundarfjórðungi fyrir leikslok er brotið var á Daniel Ballard. Enzo Le Fee skoraði úr spyrnunni og gaf heimamönnum von.
Alex Iwobi slökkti í þeim með þriðja marki Fulham á 85. mínútu og þar við sat.
Fulham er í 10. sæti með 37 stig en Sunderland í 12. sæti með 36 stig.
Crystal Palace 1 - 0 Wolves
0-0 Tolu Arokodare ('43 , Misnotað víti)
1-0 Evann Guessand ('90 )
Rautt spjald: Ladislav Krejci, Wolves ('61)
Sunderland 1 - 3 Fulham
0-1 Raul Jimenez ('54 )
0-2 Raul Jimenez ('61 , víti)
1-2 Enzo Le Fee ('76 , víti)
1-3 Alex Iwobi ('85 )
Nott. Forest 0 - 1 Liverpool
0-1 Alexis Mac Allister ('90 )
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 28 | 17 | 8 | 3 | 53 | 21 | +32 | 59 |
| 2 | Man City | 27 | 17 | 5 | 5 | 56 | 25 | +31 | 56 |
| 3 | Aston Villa | 27 | 15 | 6 | 6 | 38 | 28 | +10 | 51 |
| 4 | Chelsea | 27 | 12 | 9 | 6 | 48 | 31 | +17 | 45 |
| 5 | Man Utd | 26 | 12 | 9 | 5 | 47 | 37 | +10 | 45 |
| 6 | Liverpool | 27 | 13 | 6 | 8 | 42 | 35 | +7 | 45 |
| 7 | Brentford | 27 | 12 | 4 | 11 | 40 | 37 | +3 | 40 |
| 8 | Bournemouth | 27 | 9 | 11 | 7 | 43 | 45 | -2 | 38 |
| 9 | Everton | 26 | 10 | 7 | 9 | 29 | 30 | -1 | 37 |
| 10 | Fulham | 27 | 11 | 4 | 12 | 38 | 41 | -3 | 37 |
| 11 | Newcastle | 27 | 10 | 6 | 11 | 38 | 39 | -1 | 36 |
| 12 | Sunderland | 27 | 9 | 9 | 9 | 28 | 33 | -5 | 36 |
| 13 | Crystal Palace | 27 | 9 | 8 | 10 | 29 | 32 | -3 | 35 |
| 14 | Brighton | 27 | 8 | 10 | 9 | 36 | 34 | +2 | 34 |
| 15 | Leeds | 27 | 7 | 10 | 10 | 37 | 46 | -9 | 31 |
| 16 | Tottenham | 27 | 7 | 9 | 11 | 37 | 38 | -1 | 30 |
| 17 | Nott. Forest | 27 | 7 | 6 | 14 | 25 | 39 | -14 | 27 |
| 18 | West Ham | 27 | 6 | 7 | 14 | 32 | 49 | -17 | 25 |
| 19 | Burnley | 27 | 4 | 7 | 16 | 29 | 52 | -23 | 19 |
| 20 | Wolves | 28 | 1 | 7 | 20 | 18 | 51 | -33 | 10 |
Athugasemdir



