Fotbolti.net
22.06.15 - 16:50
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Mario Mandzukic til Juventus (Staðfest)

Mættur í ítalska boltann.

Mættur í ítalska boltann.

Canon

Mynd: Getty Images

Juventus hefur keypt króatíska framherjann Mario Mandzukic frá Atletico Madrid.

Mandzukic krotaði undir fjögurra ára samning hjá Juventus í dag en ítölsku meistararnir borga 13,7 milljónir punda fyrir þjónustu hans.
Mandzukic skoraði tuttugu mörk með Atletico Madrid á síðasta tímabili eftir að hafa komið frá FC Bayern fyrir ári síðan.

Mandzukic á að hjálpa til við að fylla skarð Carlos Tevez sem er væntanlega á förum frá Juventus í sumar.

„Mér líkar við Juventus og líkar við borgina. Ég vona að ég verði hamingjusamur hér. Ég mun berjast fyrir nýtt lið mitt,\" sagði Mandzukic við komuna til Ítalíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.