Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mán 22. júní 2020 08:30
Magnús Már Einarsson
Liverpool með tilboð í Koulibaly
Powerade
Kalidou Koulibaly
Kalidou Koulibaly
Mynd: Getty Images
Mánudagsslúðrið er mætt í hús. BBC tók pakkann saman.



Chelsea gæti snúið sér að Layvin Kurzawa (27) vinstri bakverði PSG ef félagið nær ekki að landa Ben Chilwell (23) frá Leicester. (Express)

Liverpool hefur boðið 54 milljónir punda í Kalidou Koulibaly (29) varnarmann Napoli. Manchester United og Chelsea vilja líka fá Koulibaly. (Corriere dello Sport)

Barcelona hefur hafið viðræður við Lionel Messi (32) um nýjan tveggja ára samning. (Marca)

Juventus ætlar að bjóða Wolves að fá varnarmanninn Daniele Rugani (25) og kantmanninn Federico Bernardeschi (26) sem hluta af kaupverði fyrir framherjann Raul Jimenez (29). (Tuttosport)

Roma hefur áhuga á að framlengja lánssamning Chris Smalling (30) um eitt ár en hann hefur verið á láni frá Manchester United. (Tele Radio Sterio)

Roma hefur boðið Jan Vertonghen (33) tveggja ára samning með möguleika á því þriðja. (Mail)

Fenerbahce ætlar að standa fyrir söfnun á meðal stuðningsmanna til að fá Mesut Özil (31) frá Arsenal. (Star)

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, gæti reynt að fá Joe Hart (33) frá Burnley þegar samningur hans rennur út um mánaðarmótin eftir að Bernd Leno (28) meiddist gegn Brighton. (Express)

Ronaldo, fyrrum framherji brasilíska landsliðsins, segist vera tilbúinn að fá Alexis Sanchez til Real Valladolid. Ronaldo er eigandi Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni. (Mirror)

Everton vill fá varnarmanninn Mohammed Salisu (21) frá Valladolid. Salisu er með riftunarverð upp á 10,8 milljónir punda í samningi sínum en Southampton og Manchester United hafa einnig áhuga. (Mail)

Morgan Schneiderlin (30) miðjumaður Everton er á leið til Nice í Frakklandi. (Sky Sports)

Slavia Sofia í Búlgaríu segist hafa náð samkomulagi við Manchester City um að selja miðjumanninn Filip Krastev (18). (Manchester Evening News)
Athugasemdir
banner
banner
banner