Ian Jeffs: Hefðum átt að skora fleiri
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik vann sannfærandi sigur á ÍBV í Bestu deild kvenna í kvöld og er með tveggja stiga forystu á FH á toppnum en FH á leik til góða. Fótbolti.net ræddi við Ian Jeffs, þjálfara Blika, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 3 Breiðablik
„Ég er mjög ánægður með fyrri hálfleikinn. Við hefðum átt að klára þetta alveg með fjórða, jafn vel fimmta markinu. Þetta var nokkuð sannfærandi sigur," sagði Ian Jeffs.
Hann var ánægður með svarið sem leikmenn gáfu eftir tap gegn Stjörnunni í síðustu umferð.
„Við vorum óánægðar með frammistöðuna okkar gegn Stjörnunni. Það vantaði upp á fókus og gæði á sóknarþriðjung. Við gerðum betur í dag og skorum þrjú mörk, hefðum átt að skora fleiri. Þetta var betri frammistaða," sagði Jeffs.
„Það er pláss fyrir bætingar. Það voru ákveðin augnablik sem við hefðum átt að gera betur í seinni hálfleik. Vorum 'sloppy' á boltanum en ég er ánægður með 3-0 sigur á erfiðum útvelli á móti góðu ÍBV liði."