Fotbolti.net
22.06.26 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fyrirliði KR opnar sig um hryllilegt atvik fyrir austan - „Ég er ótrúlega heppin"

Makayla Soll í leik með KR.

Makayla Soll í leik með KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Ég er ótrúlega heppin. Ef ég þarf að velja á milli brotinna úlnliða og áverka á höfði, höfuðkúpu eða hálsi, þá tek ég brotna úlnliði í hvert einasta skipti," segir Makayla Soll, fyrirliði KR, í samtali við Fótbolti.net eftir alvarlegt atvik sem varð í leik FHL og KR í Fjarðabyggðarhöllinni þann 14. júní síðastliðinn.
Makayla varð fyrir því að úlnliðsbrotna á báðum höndum eftir að hafa fallið á steinsteyptan vegg við enda vallarins í kjölfar návígis við leikmann FHL út við hornfána. Hún hefur nú gengist undir aðgerð og framundan er löng og ströng endurhæfing.

„Þetta var í raun bara venjulegt návígi um boltann. Þetta byrjaði í hornspyrnu og leikurinn hafði þegar verið mjög líkamlega krefjandi. Í þessu tilviki fór ég fram fyrir hinn leikmanninn og náði að sparka boltanum í innkast í stað hornspyrnu, en endaði svo á því að fá ýtingu aftan frá."

„Ég var á hlaupum í átt að horninu þegar ýtt var á mig aftan frá og krafturinn úr þeirri ýtingu varð til þess að ég fór beint á vegginn. Hornfáninn var einfaldlega á leiðinni, en það sem leiddi til meiðslanna var ýtingin og það litla pláss sem var í kringum völlinn."

Makayla segist hafa áttað sig fljótt á því að meiðslin væru alvarleg. „Ég var mjög heppin að geta sett hendurnar fyrir mig og í raun fórnað úlnliðunum, sem brotnuðu við höggið."

Ég heyrði öll brotin
Bandaríski miðjumaðurinn segist aldrei gleyma augnablikinu þegar hún lenti í veggnum.

„Þegar ég lenti heyrði ég öll brotin. Ég heyrði bein mín bókstaflega brotna. Þegar ég lá á jörðinni vissi ég ekki alveg hvað hafði gerst og það ríkti mikil ringulreið í höfðinu á mér."

„Þetta var mjög sérstakt hljóð. Ég vissi að það gat ekki verið neitt annað en úlnliðirnir mínir, því ég man að ég setti hendurnar fyrir mig," segir Makayla.

Hún lýsir því hvernig atvikið hafi gerst á örfáum sekúndum.

„Það var eins og allt gerðist í hægagangi. Ég sá hendurnar fara fyrir mig, heyrði úlnliðina bresta á mörgum stöðum og lá svo á jörðinni ófær um að hreyfa mig, því báðir úlnliðirnir voru brotnir."

„Ég gat ekki einu sinni hjálpað sjálfri mér að setjast upp eða haldið utan um annan úlnliðinn. Ég varð bara að liggja kyrr og bíða eftir hjálp," segir Makayla.

Þegar fyrsta áfallið var liðið tók við óvissa um alvarleika meiðslanna.

„Ég áttaði mig þó fljótt á því að þetta væri alvarlegt. Þegar fyrsta áfallið var liðið og ég áttaði mig betur á stöðunni varð ég fyrst og fremst leið, því ég vissi að þetta myndi halda mér frá keppni um tíma."

„Auðvitað langaði mig að halda áfram að spila með liðinu mínu, en ég vissi að það yrði ekki mögulegt. Það var líka mikil óvissa, því ég vissi ekki hversu alvarleg meiðslin væru eða hverjar afleiðingarnar yrðu."

Kallar eftir breytingum á öryggismálum
Makayla segir að öryggismálin eftir þegar hún hugsar um atvikið.

„Ég hef séð myndbandið af atvikinu aftur og það var erfitt að horfa á það. Það er margt sem fer í gegnum hugann, en það sem situr helst eftir eru öryggismálin," segir hún.

„Það sem gerðist á milli mín og hins leikmannsins, það er bara eins og það er. Ég get ekki sagt að ég hafi aldrei ýtt við leikmanni á vellinum, en ég ætti ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því, frekar en nokkur annar leikmaður, að steinsteyptur veggur sé svona nálægt vellinum."

Hún segir að um óþarfa atvik hafi verið að ræða.

„Ég tel að hægt sé að líta á þetta sem óþarfa að einhverju leyti. Það hefðu verið aðrir kostir í stöðunni, en ég get aldrei vitað hvað fór í gegnum huga hennar. Persónulega held ég að ég hefði ekki gert þetta ef hlutverkunum hefði verið snúið við."

„En ég get ekki dvalið of mikið við þetta núna. Þetta gerðist og það er mjög óheppilegt."

Makayla er skýr þegar kemur að aðstæðunum í Fjarðabyggðarhöllinni þar sem leikurinn fór fram.

„Fjarlægðin á milli hliðarlínunnar og steinsteypta veggsins er alltof lítil."

„Fótbolti er mjög hraður leikur og leikmenn ættu ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því að hægja á sér á ákveðnum svæðum vallarins til að forðast það að hlaupa á vegg," segir Makayla og heldur áfram:

„Það er mjög hættulegt að hafa ekki meira pláss í kringum völlinn svo leikmenn geti hægt á sér, hvort sem þeir eru að hlaupa eða falla. Allt getur gerst og þetta er steinsteyptur veggur. Þetta er einfaldlega ekki öruggt."

Hún vonast til þess að slysið verði til þess að öryggismál verði tekin til endurskoðunar.

„Ég vona að þetta leiði til frekari umræðu um öryggi leikmanna. Ég veit ekki hvað það þýðir fyrir framtíð þessarar hallar sérstaklega, en ég vona að breytingar verði gerðar til að koma í veg fyrir að eitthvað svona, eða jafnvel alvarlegra, gerist aftur."

„Það þarf að gera eitthvað strax á meðan unnið er að stærri lausnum til framtíðar."

FHL: Uppfyllum kröfur KSÍ
Í yfirlýsingu frá FHL út af málinu kemur fram að félagið harmi slysið og afleiðingar þess.

„Í leik FHL – KR þann 14. júní sl. varð það hræðilega slys að leikmaður KR slasaðist illa eftir að lenda harkalega á vegg með þeim afleiðingum að hún brotnar á báðum höndum,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.

Þá segir félagið að Fjarðabyggðarhöllin uppfylli núverandi reglugerð KSÍ um keppnisvelli í knattspyrnuhúsum.

„Eins og fram kemur í frétt hjá Austurfrétt í dag stendur til að uppfæra reglugerð KSÍ er varðar öryggi leikmanna á þrengri öryggissvæðum og mun FHL fara yfir þessi mál með eigendum Fjarðabyggðarhallarinnar.“

„Stjórn, þjálfarar og leikmenn FHL senda Makayla jafnframt batakveðjur."

Vitnað er í Birki Sveinsson, mótastjóra KSÍ, hjá Austurfrétt og þar segir hann að stærð öryggissvæðisins í Fjarðabyggðarhöllinni hafi verið staðfest og það sé þrír metrar, eins og krafa er gerð um. Í reglum KSÍ er ekki gerð krafa um frekari aðgerðir í knattspyrnhöllum, eins og að veggirnir séu klæddir efni sem dempi högg.

Birkir segir jafnframt að mannvirkjanefnd KSÍ hafi í nokkurn tíma unnið að tillögum um endurskoðun reglugerðarinnar, meðal annars að því ákvæði sem snýr að öryggi leikmanna á þrengri öryggissvæðum. Spurning er hvort þetta atvik muni vekja KSÍ til frekari umhugsunar.

Vonast til að snúa aftur í sumar
Makayla segir að næstu vikur og mánuðir snúist alfarið um endurhæfingu.

„Endurhæfingin veltur á mörgum þáttum. Aðgerðin var fyrsta skrefið og sem betur fer tókst að framkvæma hana fljótlega eftir slysið."

„Nú snýst þetta um að vinna með læknum og sjúkraþjálfurum að því að ná aftur fullri hreyfigetu og virkni í úlnliðunum."

„Ég tek eitt skref í einu. Við höfum ekki nákvæma tímalínu. Það fer allt eftir því hvernig líkaminn bregst við og grær," segir Makayla.

Hún útilokar ekki að snúa aftur á völlinn síðar í sumar, þó hún geri sér grein fyrir að það gæti reynst erfitt.

„Það væri frábært að geta spilað aftur í sumar og mig langar mjög mikið til þess. Um leið og meiðslin urðu gerði ég mér þó grein fyrir því að það væri mjög líklegt að ég myndi missa af restinni af sumrinu."

„Ég hef sætt mig við það, því heilsa mín er mikilvægust. Ef ég næ að spila aftur í sumar verður það bara bónus."

Mamma er umönnunaraðili minn í bili
Meiðslin hafa haft mikil áhrif á daglegt líf hennar.

„Daglegt líf hefur breyst mikið. Þetta hefur verið mikil aðlögun," segir Makayla.

„Þetta hefur ekki bara áhrif á mig heldur líka fjölskylduna mína. Hún þarf nú að hjálpa mér með nánast allt.“

„Ég upplifi mig á vissan hátt mjög ósjálfbjarga. Ég er vön að vera sjálfstæð manneskja og vilja gera hlutina sjálf, en nú þarf ég stöðugt að biðja aðra um hjálp,"
segir hún.

„Það hefur verið erfitt, en ég er afar þakklát fyrir fjölskylduna mína og alla í kringum mig sem eru tilbúnir að hjálpa mér.“

Móðir hennar hefur komið til Íslands til að aðstoða hana.

„Mamma mín gat sem betur fer komið til Íslands og er hér með mér núna. Hún er umönnunaraðili minn í bili," segir Makayla.

Þrátt fyrir að vera frá keppni ætlar Makayla að styðja KR af hliðarlínunni en liðið er í toppbaráttu í Lengjudeildinni.

„Hlutverk mitt hefur breyst úr því að vera leikmaður inni á vellinum yfir í að vera stærsti stuðningsmaður liðsins. Við höfum öll lagt gríðarlega hart að okkur í undirbúningnum og ég er sannfærð um að liðið muni halda áfram að standa sig vel."

„Ég hlakka til að styðja liðið áfram og fylgjast með því ná þeim árangri sem við stefnum að í lok tímabilsins," sagði Makayla Soll að lokum.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af atvikinu en við vörum við að það er ekki fyrir viðkvæma.

Hún er lykilmaður í KR.

Hún er lykilmaður í KR.

Canon

Mynd: KR

Makayla hefur verið með fyrirliðabandið hjá KR.

Makayla hefur verið með fyrirliðabandið hjá KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Fjarðabyggðarhöllin, þar sem slysið átti sér stað.

Fjarðabyggðarhöllin, þar sem slysið átti sér stað.

Canon

Mynd: Fjarðabyggð

Makayla hefur spilað með KR frá 2024.

Makayla hefur spilað með KR frá 2024.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Fótbolti er mjög hraður leikur og leikmenn ættu ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því að hægja á sér á ákveðnum svæðum vallarins til að forðast það að hlaupa á vegg.

„Fótbolti er mjög hraður leikur og leikmenn ættu ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því að hægja á sér á ákveðnum svæðum vallarins til að forðast það að hlaupa á vegg.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

FHL sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfar atviksins.

FHL sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfar atviksins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Ég tek eitt skref í einu. Við höfum ekki nákvæma tímalínu. Það fer allt eftir því hvernig líkaminn bregst við og grær.

,,Ég tek eitt skref í einu. Við höfum ekki nákvæma tímalínu. Það fer allt eftir því hvernig líkaminn bregst við og grær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spurning er hvort þetta atvik muni vekja KSÍ til frekari umhugsunar.

Spurning er hvort þetta atvik muni vekja KSÍ til frekari umhugsunar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Makayla reynir hér að ná boltanum af leikmanni Gróttu.

Makayla reynir hér að ná boltanum af leikmanni Gróttu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Makayla var valin í lið ársins í Lengjudeildinni í fyrra.

Makayla var valin í lið ársins í Lengjudeildinni í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

,,Hlutverk mitt hefur breyst úr því að vera leikmaður inni á vellinum yfir í að vera stærsti stuðningsmaður liðsins. Við höfum öll lagt gríðarlega hart að okkur í undirbúningnum og ég er sannfærð um að liðið muni halda áfram að standa sig vel.

,,Hlutverk mitt hefur breyst úr því að vera leikmaður inni á vellinum yfir í að vera stærsti stuðningsmaður liðsins. Við höfum öll lagt gríðarlega hart að okkur í undirbúningnum og ég er sannfærð um að liðið muni halda áfram að standa sig vel.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Makayla vonast til að snúa aftur í sumar.

Makayla vonast til að snúa aftur í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.