Fotbolti.net
22.06.26 - 11:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Í samstarfi við styrktaraðila

Myndband: María fékk rautt í Keflavík fyrir að lemja andstæðinginn

Auglýsing
Myndband: María fékk rautt í Keflavík fyrir að lemja andstæðinginn
Canon

Mynd: Skjáskot

María Rán Ágústsdóttir fékk að líta rauða spjaldið í leik Keflavíkur og HK í Lengjudeild kvenna um helgina.

Keflvíkingurinn María fékk beint rautt spjald fyrir að kýla og slá í leikmann HK, hún missti algjörlega hausinn og lét HK-inginn Ragnhildi Sóley Jónasdóttur finna fyrir því en þær höfðu báðar farið í grasið eftir návígi við hliðarlínuna.

Ragnhildur, sem virðist sparka frá sér til að losna frá Maríu, fékk einnig að líta rautt spjald í kjölfar atviksins sem má sjá í spilaranum efst.

Jakob Leó Bjarnason dæmdi leikinn.
Leikurinn endaði með 0-1 útisigri HK sem situr í 5. sæti eftir sjö umferðir með tíu stig en Keflavík er í 8. sæti með þremur stigum minna.

Lengjudeildirnar eru sýndar á Livey
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.