Fotbolti.net
22.06.26 - 19:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deild kvenna: Olla Sigga með tvennu í sigri Blika - Fyrsti sigur Þórs/KA

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Tveimur leikjum er lokið í níundu umferð Bestu deildar kvenna. Breiðablik endurheimti toppsætið í bili að minnsta kosti og Þór/KA vann sinn fyrsta sigur í sumar.

Breiðablik heimsótti Eyjakonur og gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik. Þær náðu forystunni snemma leiks þegar Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir sendi boltann inn á teiginn og Líf Joostdóttir van Bemmel kom Blikum yfir.
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir bætti öðru markinu við þegar hún skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Sunnu Rún Sigurðardóttir. Ólöf var aftur á ferðinni stuttu síðar þegar hún skoraði aftur með skalla en í þetta sinn eftir sendingu frá Líf.

Olga Sevcova var nálægt því að minnka muninn en átti skot rétt framhjá. Avery Mae Vanderven var síðan hársbreidd frá því að skora en Blikar björguðu á línu.

Nær komust þær ekki og fleiri mörk urðu ekki skoruð. Frábær sigur hjá Blikum sem eru á toppnum með 21 stig, tveimur stigum á undan FH sem á leik til góða. ÍBV er í 4. sæti með 14 stig.

Þór/KA fékk Þrótt í heimsókn. Jelena Tinna Kujundzic var nálægt því að koma gestunum yfir snemma leiks en skallaði framhjá úr dauðafæri.

Þór/KA náði forystunni eftir stundafjórðung þegar María Dögg Jóhannesdóttir skoraði glæsilegt mark þegar hún klippti boltann á lofti.

Um tíu mínútum síðar vann Erin Flurey boltann hátt upp á vellinum, sendi hann út í teiginn og Amalía Árnadóttir skoraði og kom Þór/KA í tveggja marka forystu.

Þróttarar voru nálægt því að setja spennu í leikinn undir lokin þegar Mist Funadóttir átti skot langt fyrir utan teiginn en boltinn fór í slána. Nær komust þær ekki og Þór/KA vann sinn fyrsta sigur í sumar. Þór/KA er í 9. sæti með sex stig en Þróttur er í 5. sæti með 13 stig.

ÍBV 0 - 3 Breiðablik
0-1 Líf Joostdóttir van Bemmel ('8 )
0-2 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir ('19 )
0-3 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir ('23 )
Lestu um leikinn

Þór/KA 2 - 0 Þróttur R.
1-0 María Dögg Jóhannesdóttir ('16 )
2-0 Amalía Árnadóttir ('25 )
Lestu um leikinn
Amalía Árnadóttir

Amalía Árnadóttir

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik9+1421
2FH8+1219
3Stjarnan8+514
4ÍBV9-314
5Þróttur R.8+413
6Grindavík/Njarðvík8-311
7Víkingur R.8-69
8Valur8-38
9Fram8-124
10Þór/KA8-83
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.