Fotbolti.net
22.06.26 - 23:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jói útherji

Yfirlýsing Atletico: Alvarez verður ekki seldur til Barcelona

Yfirlýsing Atletico: Alvarez verður ekki seldur til Barcelona
Canon

Mynd: EPA

Julian Alvarez, leikmaður Atletico Madrid, sagði í viðtali við ESPN í kvöld að hann vildi yfirgefa félagið.

„Ég reyni að vera hreinskilinn. Ég talaði við fólk hjá Atletico sem ég þurfti að tala við. Ég held að það sé best fyrir alla að ég fari. Ég vil uppfylla drauminn," sagði Alvarez.
Alvarez varpar sprengju: Best fyrir alla að ég fari
TENGT EFNI

Alvarez varpar sprengju: Best fyrir alla að ég fari

Alvarez hefur m.a. verið orðaður við Barcelona og Arsenal. Félagið hafnaði 150 milljón evra tilboði frá Real Madrid. Félagið hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir ummæli Alvarez.

„Það er engin upphæð sem Barcelona getur keypt Julián Álvarez fyrir. Hann verður ekki seldur til Barcelona. Annað hvort greiða þeir uppsagnarákvæðið upp á 500 milljónir evra eða það verður enginn samningur," segir í yfirlýsingunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.