Fotbolti.net
22.07.26 - 18:13
Brynjar Ingi Erluson

Doku og Khusanov verðlaunaðir með nýjum samningum

Doku verður áfram hjá Man City

Doku verður áfram hjá Man City

Canon

Mynd: EPA

Manchester City-mennirnir Jeremy Doku og Abdukodir Khusanov hafa samþykkt nýja samninga við enska félagið sem gilda til ársins 2031. Frá þessu greinir Athletic.
Khusanov er 22 ára miðvörður sem hefur fest sig í sessi í byrjunarliði Manchester City síðan hann kom frá franska félaginu Lens á síðasta ári.

Hann nýtti tækifærið til fulls á síðari hluta síðasta tímabils þegar Ruben Dias og Josko Gvardiol glímdu við meiðsli.

City ætlar að verðlauna Khusanov fyrir frammistöðuna með nýjum samningi. Núverandi samningur hans gildir til 2029 en til stendur að framlengja hann um tvö ár, eða til sumarsins 2031.

Doku er 24 ára vængmaður sem hefur leikið yfir 40 leiki á hverju tímabili síðan hann gekk til liðs við City fyrir þremur árum.

Hann kom að 22 mörkum í öllum keppnum á síðasta tímabili og lagði áherslu á að framlengja dvöl sína hjá félaginu enda hafði hann engan áhuga á að leita annað.

Báðir hafa samþykkt nýja samninga og búist er við staðfestingu frá Manchester City á næstu vikum.

Penninn hefur verið á lofti hjá City að undanförnu en félagið hefur einnig framlengt samning Phil Foden til ársins 2030.

Forráðamenn félagsins eru jafnframt bjartsýnir á að ná samkomulagi við Gvardiol á næstu vikum. Þá heldur City í vonina um að halda spænska miðjumanninum Rodri, sem hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid.

Rodri var valinn besti leikmaður heimsmeistaramótsins þegar Spánn varð heimsmeistari og vann einnig Gullboltann árið 2023.
Abdukodir Khusanov hefur heillað síðan hann gekk í raðir City frá Lens á síðasta ári

Abdukodir Khusanov hefur heillað síðan hann gekk í raðir City frá Lens á síðasta ári

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.