Fotbolti.net
01.11.26 - 14:08
Brynjar Ingi Erluson

Bergvin Fannar í Stjörnuna (Staðfest)

Bergvin Fannar í Stjörnuna (Staðfest)
Canon

Mynd: Stjarnan

Stjarnan hefur fengið til sín Bergvin Fannar Helgason frá ÍR en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.
Rúnar Páll að krækja í annan leikmann
TENGT EFNI

Rúnar Páll að krækja í annan leikmann

Bergvin Fannar er 23 ára gamall framherji sem hefur leikið með meistaraflokki ÍR frá árinu 2019.

Hann skoraði sjö mörk í Lengjudeildinni í sumar og átta mörk tímabilið þar á undan, en alls hefur hann skorað 60 mörk í 169 meistaraflokksleikjum fyrir ÍR.

Eftir nýafstaðið tímabil ákvað hann að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við ÍR-inga.

Nú tekur hann næsta skref á ferlinum með Stjörnunni og fagnar Rúnar Páll Sigmundsson, nýr þjálfari liðsins, komu hans til félagsins.

„Stór og sterkur framherji sem er fljótur og góður í uppspili. Sterkur í boxinu og frábær viðbót í okkar sterka leikmannahóp. Toppdrengur sem smellpassar inn í okkar umhverfi,“ sagði Rúnar Páll um Bergvin.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.