Fotbolti.net
22.09.19 - 12:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gylfi fékk að heyra það frá stuðningsmönnum eftir slaka frammistöðu

Gylfi fékk að heyra það frá stuðningsmönnum eftir slaka frammistöðu
Canon

Mynd: Getty Images

Everton tapaði í gær gegn nýliðum Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni á heimavelli sínum, Goodison Park.
Heldur betur óvænt tap. Yerry Mina skoraði sjálfsmark í fyrri hálfleiknum og kom Lys Mousset Sheffield United í 2-0 með marki á 79. mínútu.

Stuðningsmenn Everton voru mjög ósáttir eftir leikinn og var Gylfi Þór Sigurðsson fyrir barðinu á reiði stuðningsmanna á samfélagsmiðlum.

Vefsíðan This Is Futbol tók saman nokkur tíst þar sem stuðningsmenn Everton gagnrýndu Gylfa.

Gylfi fékk ekki góðar einkunnir eftir frammistöðu sína í gær og gaf Sky Sports honum til að mynda lægstu einkunn af öllum í leiknum.







Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.