Fotbolti.net
22.09.26 - 19:00
Kári Snorrason

Að spila sinn besta bolta í Berlín - „Verið bras þar til núna“

Sjóðheitur í upphafi tímabils.

Sjóðheitur í upphafi tímabils.

Canon

Mynd: Hertha BSC

Eimskip
Jón Dagur Þorsteinsson hefur farið mikinn með Herthu Berlin í upphafi tímabils í Bundesliga 2 í Þýskalandi.

Liðið er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir sex leiki. Jón hefur byrjað fjóra leiki liðsins og skorað þrjú mörk ásamt því að leggja upp eitt til viðbótar.

„Ég held að ég sé að spila minn besta bolta og er að fá að spila mikið. Þetta hefur verið virkilega góð byrjun hjá mér og liðinu,“ sagði Jón í samtali við Fótbolta.net fyrr í dag en hann er staddur á Íslandi fyrir komandi leiki með landsliðinu í C-deild Þjóðadeildarinnar.
Jón Dagur ræðir dræma miðasölu - „Getum sjálfum okkur um kennt“
TENGT EFNI

Jón Dagur ræðir dræma miðasölu - „Getum sjálfum okkur um kennt“

Bras þar til núna
Jón gekk til liðs við Berlínarliðið fyrir tveimur árum síðan og hefur hann ekki verið fastamaður í liðinu og fór hann jafnframt á lán frá félaginu til Brann snemma árs. Hann var spurður hvort að tíminn hjá Hertha hafi verið sveiflukenndur.

„Sveiflukenndur? Þetta hefur bara verið bras þar til í byrjun tímabils núna,“ sagði Jón léttur og hélt áfram.

„Vonandi er þetta að snúast við og við náum að enda hærra í töflunni en áður. Ég held að tíminn í Noregi hafi nýst mér vel. Í stærra hlutverki og með meira sjálfstraust, þá fylgir hitt oftast með.“

Stóð til boða að fara í sumar
Jón segir það hafa verið möguleika að yfirgefa félagið í sumar en hann hafi haft lítinn áhuga á því að yfirgefa félagið.

„Mig langaði að snúa þessu við og leist vel á hvernig þeir settu upp þetta tímabil, bæði fyrir mig og liðið. Það voru miklar breytingar þannig ég ákvað frekar snemma að ég yrði áfram,“ sagði Jón.

Öðruvísi staða en í fyrra
Eftir að hafa byrjað tímabilið í Þýskalandi frábærlega tekur við þriggja vikna landsleikjahlé. Um er að ræða fyrsta fjögurra leikja landsleikjagluggann en Jón var spurður hvort það væri að einhverju leyti pirrandi að yfirgefa félagsliðaboltann á meðan það gengur svona vel.

„Þetta er kannski öðruvísi en í fyrra þegar maður var lítið að spila. Þá gat maður ekki beðið eftir því að koma en smá öðruvísi að þetta sé svo langur gluggi. En maður hefur svo gaman af þessu og skemmtilegt að hitta alla aftur, við þurfum bara að bæta við sigurleikjum,“ sagði Jón að lokum.

Ísland mætir Eistlandi á Laugardalsvelli næstkomandi laugardag áður en liðið sækir Lúxemborg heim. Þá tekur við heimaleikur gegn Búlgaríu og glugganum lýkur með útileik gegn Eistlandi.
Samningur Jóns við Berlínarliðið rennur út í lok tímabils.

Samningur Jóns við Berlínarliðið rennur út í lok tímabils.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Maður hefur svo gaman af þessu og skemmtilegt að hitta alla aftur.“

„Maður hefur svo gaman af þessu og skemmtilegt að hitta alla aftur.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fram undan eru fjórir leikir í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Fram undan eru fjórir leikir í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jón Dagur ræðir dræma miðasölu - „Getum sjálfum okkur um kennt“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.