22.09.26 - 18:41
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeild kvenna: Jafnt í risaslag - Inter vann Íslendingaslag

Mynd: EPA

Mynd: Inter

Mynd: EPA

Fjórir Íslendingar komu við sögu í tveimur fyrstu leikjum dagsins í deildarkeppni Meistaradeildar kvenna.
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn er Þýskalandsmeistarar FC Bayern tóku á móti enska stórveldinu Manchester City.
Bayern komst í tveggja marka forystu en gestirnir minnkuðu muninn skömmu fyrir leikhlé og tóku svo völdin á vellinum í síðari hálfleik.
Khadija Shaw klúðraði vítaspyrnu á 62. mínútu en Carlotta Wamser náði að setja inn jöfnunarmark undir lokin, svo lokatölur urðu 2-2.
Liðin áttust við í fyrstu umferð og voru því að sækja sín fyrstu stig.
Á sama tíma var Cecilía Rán Rúnarsdóttir á sínum stað á milli stanga Inter sem tók á móti BK Häcken, sigurvegurum Evrópubikarsins frá síðustu leiktíð.
Inter vann 1-0 eftir nokkuð jafnan slag þar sem Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn af bekknum á 56. mínútu.
Thelma Karen Pálmadóttir var í byrjunarliði Häcken og spilaði fyrstu 72 mínútur leiksins.
Jennifer Falk, markvörður Häcken, fékk beint rautt spjald fyrir brot undir lokin.
FC Bayern 2 - 2 Man City
1-0 Giulia Gwinn ('11 )
2-0 Kerstin Casparij ('28, sjálfsmark)
2-1 Bethany Mead ('45 )
2-1 Khadija Shaw, misnotað víti ('62)
2-2 Carlotta Wamser ('86 )
Inter 1 - 0 Hacken
1-0 Haley Bugeja ('5 )
Rautt spjald: Jennifer Falk, Hacken ('89)