Ruben Loftus-Cheek kjálkabrotnaði og missti nokkrar tennur eftir að hafa lent í samstuði í viðureign AC Milan og Parma í gær, Sky Italia greinir frá.
Hann var festur í spelku á bæði höfði og hálsi áður en hann var fluttur af leikvanginum. Atvikið gerðist snemma leiks og lenti hann í samstuði við markvörð Parma, Edoardo Corvi, þegar hann fór í skallabaráttu snemma leiks.

Samkvæmt Sky Italia mun hann þurfa gangast undir aðgerð og verður frá keppni í einhverja mánuði. Enskir miðlar segja komandi heimsmeistaramót vera jafnframt í hættu.
Enski miðjumaðurinn lék sinn fyrsta landsleik í sjö ár þegar hann kom inn á sem varamaður gegn Wales í október síðastliðnum.
Athugasemdir