Fotbolti.net
23.02.26 - 13:00
Kári Snorrason
Í samstarfi við styrktaraðila

HM í hættu eftir að hafa kjálkabrotnað og brotið tennur

Loftus-Cheek sneri aftur í enska landsliðið fyrr í vetur eftir sjö ára fjarveru.

Loftus-Cheek sneri aftur í enska landsliðið fyrr í vetur eftir sjö ára fjarveru.

Canon

Mynd: EPA

Ruben Loftus-Cheek kjálkabrotnaði og missti nokkrar tennur eftir að hafa lent í samstuði í viðureign AC Milan og Parma í gær, Sky Italia greinir frá.

Hann var festur í spelku á bæði höfði og hálsi áður en hann var fluttur af leikvanginum. Atvikið gerðist snemma leiks og lenti hann í samstuði við markvörð Parma, Edoardo Corvi, þegar hann fór í skallabaráttu snemma leiks.
Samkvæmt Sky Italia mun hann þurfa gangast undir aðgerð og verður frá keppni í einhverja mánuði. Enskir miðlar segja komandi heimsmeistaramót vera jafnframt í hættu.

Enski miðjumaðurinn lék sinn fyrsta landsleik í sjö ár þegar hann kom inn á sem varamaður gegn Wales í október síðastliðnum.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.